Alþjóðanefnd

 

Klara Lísa Hervaldsdóttir,

formaður

Elín Jóhannsdóttir
Elfar Rúnarsson
Baldvin Jónsson
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Sveinn Magnússon

 

 

Sértæk verkefni alþjóðarnefndar á starfsárinu 2007-2008:

 

Kynnir sér starf Alþjóðanefndar umdæmisins og annarra Rótarýklúbba varðandi þróunaraðstoð í þriðja heiminum. Gerir tillögur um framlag Rótarýklubbsins Görðum í formi framlags fjármuna og/eða samstarfs við aðra klúbba eða Alþjóðanefnd umdæmisins.

 

Almenn verkefni nefndarinnar:

 

 

  • Annast móttöku erlendra Rótarýgesta og veitir þeim fyrirgreiðslu á fundum og annars staðar, þar sem hennar er þörf á vegum klúbbsins.

 

  • Hefur náið samband við fulltrúa  Rótarýklúbbsins Görðum í starfshópaskiptanefnd  og alþjóðlegri samskiptanefnd  umdæmisins um verkefni.

 

  • Er ráðgjafaraðili fyrir stjórn klúbbsins varðandi alþjóðamál.

 

  • Sér um að veita fræðslu um viðhorf Rótarý til alþjóðamála og gerir tillögur um, á hvern hátt Rótarý og einstakir félagar geti best stuðlað að velvild og gagnkvæmum skilningi þjóða í milli.